Stefnumál

Frambjóðendur Betri Bolungarvíkur vilja vinna saman að því að gera góðan bæ enn betri. Við viljum byggja á þeim sterku stoðum sem fyrir eru og vinna verkefnin með skýrri sýn og markvissum aðgerðum. Með ábyrgri stjórnun, betri nýtingu fjármuna og virku samtali við íbúa er hægt að skapa samfélag sem við getum öll verið stolt af.

Bolungarvík framtíðarinnar er fjölskylduvænt, framsækið og sjálfbært samfélag þar sem metnaður, ábyrgð, samvinna og samkennd skapa tækifæri. Með kröftugu atvinnulífi og traustri grunnþjónustu skapast öflugt samfélag þar sem allir fá að vaxa og dafna. Markmið okkar er að efla Bolungarvík sem aðlaðandi valkost fyrir fjölskyldur og fyrirtæki þar sem lífsgæði og tækifæri fara saman.

Frambjóðendur Betri Bolungarvíkur

Samfélagið

Sterkt samfélag einkennist af samstöðu, virkri þátttöku og gagnkvæmri virðingu. Þegar íbúar hafa tækifæri til að koma að ákvörðunum og leggja sitt af mörkum eflist samtakamáttur samfélagsins. Mikilvægt er að skapa vettvang þar sem raddir íbúa heyrast og hugmyndir þeirra fá að þróast.

Við viljum samfélag þar sem íbúar finna að þeir tilheyra og þar sem auðvelt er að taka þátt. Með aukinni þátttöku og opnum samskiptum má skapa sterkari tengsl milli íbúa og sveitarfélags.

Fjölskyldan

Við viljum að Bolungarvík sé eftirsóttur staður fyrir fjölskyldur þar sem börn fá góðan stuðning og jöfn tækifæri í leik og námi. Við ætlum að bæta aðbúnað menntastofnana bæjarfélagsins og stuðla að vellíðan barnanna okkar.

Ungmennin

Ungmenni gegna lykilhlutverki í þróun samfélagsins og mikilvægt er að skapa þeim skilyrði til þátttöku. Með því að hlusta á raddir þeirra og gefa þeim tækifæri til áhrifa má byggja upp sterka framtíðarsýn.

Við viljum að ungmenni í Bolungarvík hafi raunveruleg tækifæri til að taka þátt í samfélaginu og leggja sitt af mörkum.

Umhverfið

Gott umhverfi hefur bein áhrif á lífsgæði, vellíðan og upplifun íbúa. Snyrtimennska, skipulag og góð umgengni skapa jákvæða ásýnd og gera bæinn aðlaðandi fyrir bæði íbúa og gesti.

Við viljum að eignum bæjarins sé vel við haldið svo sómi sé af, með sérstaka áherslu á skóla- og íþróttamannvirkin. Við ætlum að gera tímasetta áætlun um skipulagða uppbyggingu, reglubundið viðhald og aðgerðir sem bæta ásýnd bæjarins.

Atvinnulífið

Í Bolungarvík er öflugt atvinnulíf sem er undirstaða vaxtar og velferðar í samfélaginu. Við viljum stuðla að fjölbreyttari atvinnutækifærum, meðal annars með uppbyggingu smærri fyrirtækja á iðnaðarsvæðum og skapa umhverfi þar sem fyrirtækin geta blómstrað.

Við leggjum áherslu á að styðja áfram við uppbyggingu laxeldis sem eina af meginstoðum atvinnulífsins í Bolungarvík. Við ætlum að bæta hafnaraðstöðuna og þrýsta á stjórnvöld að setja framkvæmdir við höfnina ofar í forgangsröð.

Velferðin

Velferðarkerfið er grunnur að öryggi og lífsgæðum íbúa. Mikilvægt er að þjónustan sé aðgengileg, skilvirk og byggð á þörfum fólks á öllum aldri.

Við viljum tryggja jafnan aðgang allra að góðri þjónustu og veita stuðning sem eykur sjálfstæði, vellíðan og öryggi. Við viljum að eldri Bolvíkingunum okkar líði vel og geti sótt öflugt félagsstarf, hvort sem það er í bænum okkar eða nágrenni.

Stjórnsýslan

Góð stjórnsýsla byggir á trausti, fagmennsku og ábyrgð. Skýr stefna og gegnsæi í ákvarðanatöku eru lykilatriði í því að skapa traust milli íbúa og sveitarfélags. Þegar upplýsingar eru aðgengilegar og ákvarðanir vel rökstuddar styrkist samfélagið.

Við viljum stjórnsýslu sem vinnur markvisst fyrir íbúa, nýtir fjármagn á ábyrgan hátt og hefur skýra yfirsýn með rekstri og forgangsröðun verkefna til lengri tíma. Með bættri upplýsingagjöf og skýrari ferlum verður auðveldara fyrir íbúa að fylgjast með, taka þátt og hafa áhrif.

Menningin

Menning og listir eru mikilvægur hluti af lífsgæðum í samfélaginu. Virkt menningarlíf skapar samkennd, eykur aðdráttarafl bæjarins og gefur íbúum og þeim sem sækja okkur heim, tækifæri til þátttöku og sköpunar.

Við viljum efla menningu í Bolungarvík þannig að hún verði sýnileg. Við ætlum að tryggja aðgengi að menningu óháð aldri og gera söfnum bæjarfélagsins hátt undir höfði.